14.04.2008 08:14

Skyndihjálparnámskeið fyrir bifhjólafólk.

Götuhjóladeild Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar (RR-AÍH) mun halda skyndihjálparnámskeið fyrir bifhjólafólk dagana 21. og 22. apríl n.k.
Námskeiðið er sérsniðið að þörfum bifhjólafólks, sem oftar en ekki er fyrst á slysstað þegar bifhjól á í hlut.
Farið verður yfir helstu meiðsli sem bifhjólafólk getur fengið t.d. við það að falla af bifhjóli eða þegar bifreið er ekið á það. Leiðbeinandinn hefur reynslu á þessu sviði og ætti enginn bifhjólamaður að láta þetta fara framhjá sér nú í upphafi tímabils.

"Námskeið sem þetta getur skipt sköpum og skilið á milli feigs og ófeigs!"
Hafnarfjarðardeild Rauða Kross Íslands sér um kennslu og fer námskeiðið fram að Strandgötu 24 Hafnarfirði. Gengið er inn Fjarðargötumegin á milli Dominos og Fjarðar.
Námskeiðið er samtals 8 tímar, 4 tímar hvort kvöld og hefst kl. 19.00 og stendur til 22.00.
Þátttökufjöldi miðast við 20 manns en ef þátttaka er meiri verður haldið annað námskeið síðar.
Skráðir meðlimir í RR-AÍH sem hafa greitt félagsgjöld fyrir árið 2008 greiða 2.500 kr fyrir námskeiðið. Aðrir greiða 5.000 kr.

Hægt er að skrá sig í RR-AÍH og greiða 4.000 kr. árgjald og fá þá námskeiðið á 2.500 kr. Upplýsingar um greiðslu eru á skráningarsíðunni.
Sem flestir eru hvattir til að mæta og taka þátt í því að gera bifhjólamennskuna öruggari.
Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að senda tölvupóst til stjórnar RR-AÍH á netfangið stjorn@road-race.net
Smelltu hér til að skrá þig
http://www.road-race.net/skyndihjalp.aspx
Flettingar í dag: 75
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 147
Gestir í gær: 39
Samtals flettingar: 401161
Samtals gestir: 105074
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 13:00:25
clockhere