07.05.2008 12:43

Mótorhjólamessa 12. maí 2008

Mótorhjólamessa Annan í hvítasunnu
mánudaginn 12. maí kl. 20.00

Mótorhjólamessa í samstarfi þjóðkirkjusafnaða og Hvítasunnukirkjunnar. Flestir mótorhjólaklúbbar munu eiga fulltrúa í messunni með þátttöku sinni.
Prestar:
Sr. Gunnar Sigurjónsson, Snigill og IFMR.
Sr. Íris Kristjánsdóttir, Snigill og Skutla.
Vörður Leví Traustason, forstöðumaður Hvítasunnukirkjunni, Trúboði.
Jón Þór Eyjólfsson, aðstoðarpastor Fíladelfíu, Snigill og Trúboði.

Tónlistarmaðurinn Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina ásamt Meme-group sem er gospelkór unglingastarfsins í Digraneskirkju.
Allt áhugafólk um mótorhjól og umferðarmenningu er velkomið í messuna. Mótorhjól verða til sýnis fyrir utan kirkjuna og nokkur verða til sýnis í anddyrinu. Leðurklæðnaður og annar öryggisbúnaður á mótorhjólum er viðeigandi messuklæðnaður.
Sr. Gunnars, Kraftaklerkur


 
 

Flettingar í dag: 89
Gestir í dag: 38
Flettingar í gær: 82
Gestir í gær: 49
Samtals flettingar: 384567
Samtals gestir: 100161
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 20:13:02
clockhere