19.08.2008 01:33
K-in þrjú ...
Kæru félagar!
Hjartans þakkir fyrir frábæra ferð og yndislega samveru í Trúboð(a)s ferð okkar til Akureyrar. Ég og örugglega fleiri voru búnir að hlakka mikið til þessarar stundar. Það er kannski erfitt að útskýra nákvæmlega hvað tilhlökkunin gengur út á, en það fer í gang einhver spennandi eftirvænting að hitta félaga?, að fara að hjóla?, að takast á við veðrið?, að takast á við óvæntar kringumstæður, að fá að segja frá því sem liggur á hjartanu??????. Loxins er stundin komin og ferðabænin búin og fákarnir roknir af stað! Sumir eru undirbúnir í að gera eitthvað, aðrir bara tilbúnir í slaginn og einhverjir eru með áhugamál sem þeir eru til í að ræða hvar og hvenær sem er...........
Nú sem fyrr kom að því að við þurftum að standa keik gagnvart gestum okkar og útskýra hvað við stöndum fyrir í raun og veru og staðfesta bæði í orði og verki að við erum ekki bara einhverjir mótorhjólatöffarar að sunnan. Við lentum í raun ítrekað í slíkum kringumstæðum að við þurftum að útskýra af hverju við vorum komnir. Strax á laugardagskvöldið og síðan á sunnudeginum var nokkrum okkar kippt upp í ræðupúltið til að segja frá tilveru okkar og tilgangi. Síðar á laugardagskvöldinu kynntumst við yndislegum manni tók á móti okkur eins og fjölskyldu sinni, en sem byggir trú sína á mótorhjólum. Á sunnudagsmorgni ferðuðumst við um Eyjafjarðarsveitir með frábæru fólki sem umgekkst okkur eins og vini til margra ára. Eftir hádegi á sunnudag áttum við stórkostlega samverustund með systkinum okkar á Akureyri sem tóku á móti okkur eins og týnda syninum.
Við svona kringumstæður er mjög mikilvægt að við sem hópur sínum á einfaldan hátt að við erum öðru vísi en aðrir Bikerar. Hvað er það þá sem við getum staðið saman að ekki bara þegar við erum í gallanum; heldur einnig án hans. Á heimleiðinni gafst góður tími til umhugsunar. Í huganum dáðist ég fyrst og fremst af því hvað svona stór og myndarlegur hópur dró að sér mikla athygli og fyrirspurnir og var ávallt til mikillar fyrirmyndar. Við t.d. vorum alltaf sérstaklega dugleg heilsa og kynna okkur með nafni. Allavega þegar atburðirnir rúlluðust upp í huganum, þá sá ég hvernig við vorum með lifandi og spennandi boðskap sem einkenndist einfaldlega af þremur K-um sem standa fyrir Kristni, Kurteisi og Kærleika. Bara þetta gerir okkur sérstök og spennandi hvar sem er og hvenær sem er.
Þá vil ég enn og aftur beina sérstöku þakklæti til félaga okkar fyrir norðan með von um meira umgengi og fleiri hjólaferðir.
Guð blessi ykkur,
Doktorinn

Skrifað af Doktorinn #3
Flettingar í dag: 89
Gestir í dag: 38
Flettingar í gær: 82
Gestir í gær: 49
Samtals flettingar: 384567
Samtals gestir: 100161
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 20:13:02
clockhere